Stígur ekki inn í kjaradeiluna að svo stöddu

Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir að á meðan einhver þróun er í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) ætli stjórnvöld ekki að skipta sér af henni. „Alls ekki fyrr en það er fullreynt að samstaða náist á milli samstarfsaðila,“ segir hann.Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara 5. maí.Daði Már segir ljóst að leysa verði kjaradeiluna en í ráðuneyti hans hefur ekki verið fundað sérstaklega um stöðuna. Þar hefur heldur ekki verið ráðist í vinnu þar til að kortleggja stöðuna.„Ekki á þessum tímapunkti. Það er alveg ljóst að það eru ákveðnar áskoranir sem mæta rekstri fyrirtækisins. Við fylgjumst með því eins og við fylgjumst almennt með stöðu íslenskra fyrirtækja.“Inntur eftir því hvort stjórnvöld ætli að beita sér fyrir því að starfsemi Icel
Stígur ekki inn í kjaradeiluna að svo stöddu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd