Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hyggst stofna starfshóp til að móta áætlun til lengri tíma fyrir ferjusiglingar á Íslandi. Honum verði einnig falið að útbúa viðbragðsáætlun við skerðingu á siglingum til og frá Vestmannaeyjum sem muni liggja fyrir í vetur.