Elko opnaði í dag nýja verslun með áherslu á smærri raftæki í Smáralind í Kópavogi. Verslunin er um 200 fermetrar að stærð og þar af sjálft verslunarrýmið um 170 fermetrar. Verslunin er við hlið Garðsins mathallar í austurenda Smáralindar á annarri hæð.