Ellefu lögreglumenn og lögregluhundur særðust í mótmælum í Southampton í Bretlandi í gærkvöld. Fólk kom saman og mótmælti meðferð lögreglu á Henry Nowak, 18 ára pilti sem var stunginn til bana í desember í fyrra.Nýbirtar upptökur sýna að lögregla handtók Nowak á vettvangi á meðan honum blæddi út vegna stungusára. Hann var handtekinn eftir rangar ásakanir Vickrums Digwa um kynþáttafordóma. Digwa var síðar var dæmdur fyrir morðið í vikunni.Í ræðu í breska þinginu í dag hvatti Keir Starmer forsætisráðherra til stillingar. Hann sagði ekkert réttlæta frekara ofbeldi og að árásir á lögreglumenn í Southhampton í gær væru til skammar.Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands.AP / Kirsty Wigglesworth