Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari lét af embætti dómara nú um mánaðamót. Ólafur Börkur var skipaður hæstaréttardómari árið 2003 og var sá dómari við réttinn sem hafði lengstan starfsaldur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hæstarétti.Ólafur Börkur er 65 ára gamall. Dómarar sem hafa náð þeim aldri geta óskað eftir að vera leystir frá störfum og halda þeir þá fullum launum til æviloka.Ólafur Börkur, lengst til hægri í fremri röð, ásamt öðrum dómurum við Hæstarétt.Hæstiréttur