Eldur kviknaði í fiskibát

Eldur kviknaði í vélarrúmi fiskibáts á Breiðafirði í dag þar sem einn maður var um borð.Landhelgisgæslunni barst tilkynning um atvikið á tólfta tímanum en skömmu eftir að eldurinn kviknaði var búið að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi.„Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var þegar í stað kölluð út á mesta forgangi ásamt áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Rifi. Einnig voru skip og bátar í grenndinni beðin um að halda á vettvang,“ segir í tilkynningu.Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, segir við fréttastofu að skipverjanum heilsist vel og ekki hafi verið þörf á því að flytja hann með þyrlunni. Hann varð fyrir óhappi eftir að eldurinn kom upp og því þurfti að huga að honum.„Það var tekin ákvörðun um að hann færi á björgunarskipinu sem
Eldur kviknaði í fiskibát

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd