Vara við svikapóstum í nafni lögreglunnar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vekur athygli á svikaskilaboðum sem hafa borist fólki í sms-skilaboðum síðustu daga. Skilaboðin eru sögð vera frá umferðarlögreglunni en þar er fólki tilkynnt að það þurfi að greiða sekt fyrir umferðarlagabrot þegar í stað.Lögreglan bendir á að sektir frá lögreglu berist alltaf inn á ísland.is en ekki í smáskilaboðum. Þá beinir hún þeim tilmælum til fólks að leita frekar inn á viðurkennda síðu þeirra sem eiga að hafa sent póst frekar en að smella á óþekkta hlekki í skilaboðum.Skilaboðin sem eru í dreifingu.Aðsend
Vara við svikapóstum í nafni lögreglunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd