Donald Trump forseti Bandaríkjanna staðfesti í dag að hann hefði gagnrýnt Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, harðlega í símtali þeirra á mánudag. Fjölmiðillinn Axios greinir frá.Miranda Devina, umsjónarmaður hlaðvarps New York Post, spurði Trump hvort hann hefði sagt Netanyahu gjörsamlega brjálaðan (e. fucking crazy). Trump á einnig að hafa sagt Netanjahú að hann væri í fangelsi en sín nyti ekki við. Þessu svaraði Trump játandi. Hann útskýrði að hann hafi verið órólegur vegna árása Ísraelshers á Líbanon og hvatt Netanjahú til að hætta þeim. Trump sagði einnig í hlaðvarpinu að hann kynni mjög vel við Netanjahú og að þeir hefðu unnið vel saman.Ísraelar hafa gert harðar árásir á Líbanon síðustu mánuði og drepið yfir 3400 manns. Um ein milljón manna er á vergangi í landinu vegna árá