Engin slys á fólki í gróðureldum í Murcia

Gróðureldar breiddust úr nærri borginni Murcia á Spáni í gær, í samnefndu héraði. Fjöldi slökkviliðsmanna mætti á vettvang, auk hermanna og annarra viðbragðsaðila. Eldurinn logaði í þurrum gróðri og aðstæður voru þannig að það var mikill vindur og hár hiti, allt að 40 gráður. Appelsínugul veðurviðvörun var í gildi í gær vegna hitans.100 manns þurftu að yfirgefa heimili sín í varúðarskyni í gær. Enginn slasaðist í eldunum sem eru taldir þeir mestu sem hafa logað við borgina. Á samfélagsmiðlum hefur fólk deilt myndböndum þar sem sjá má appelsínugulan himin.Það tókst að slökkva eldinn að mestu í gær og í nótt. Í morgun var enn eldur í Los Garres. Búist er við meiri aðstoð í dag og segja yfirvöld að mesta hættan sé liðin hjá.
Engin slys á fólki í gróðureldum í Murcia

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd