Undirbúningur fyrir brottvísun tíu erlendra fanga er hafinn og brottvísunarferlið hefst um leið og ný lög um fullnustu refsinga taka gildi. Alþingi samþykkti lögin á mánudag.Með nýjum lögum verður heimilt að veita erlendum föngum, sem ákveðið hefur verið að vísa úr landi, reynslulausn þegar þriðjungur refsitímans er liðinn. Þeim verður tafarlaust vísað úr landi og sæta endurkomubanni til landsins, og Schengen-svæðisins eftir atvikum.Í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu segir að undirbúningur vegna lagabreytingarinnar hafi staðið yfir hjá Fangelsismálastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra.Þeim 10 sem verður brottvísað fyrst um sinn, um leið og lögin taka gildi, hlutu öll dóm fyrir fíkniefnalagabrot og hafa engin tengsl við landið. Alls afplána 20 dóm í íslenskum fangel