Meira en tuttugu leyfislausir leiðsögumenn stöðvaðir á árinu

Erlendum leiðsögumönnum, sem fara um landið með hópa, án tilskilinna leyfa virðist fara fjölgandi. Í ár Það sem af er árinu hefur lögreglan á Suðurlandi stöðvað tuttugu slíka hópa. Hún segist ná betur utan um ólöglega ferðaþjónustu en áður.„Aukningin er alveg sýnileg, eins og kemur fram í tölum. Þessum brotum hefur verið að fjölga,“ segir Þorsteinn M. Kristinsson, aðalvarðstjóri á Suðurlandi. Í því umdæmi hefur lögreglan eftirlit með nokkrum af vinsælustu ferðamannastöðum landsins.Það lendir því að mestu leyti á þeirra borði að stöðva leiðsögumenn með hópa og kanna hvort starfsemin sé lögleg. Sífellt oftar er hún það ekki.Árið 2018 voru skráð 26 slík mál í umdæminu, árið eftir meira en tvöfalt fleiri og í fyrra voru skráð sjötíu og sex rekstrarleyfisbrot. Það eru nær eingöngu ferðamannahóp
Meira en tuttugu leyfislausir leiðsögumenn stöðvaðir á árinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd