Evrópusambandið rýmkar reglur um hallarekstur aðildarríkjanna vegna orkukrísunnar

Aðildarríki Evrópusambandsins fá aukið svigrúm frá reglum ESB um opinber fjármál, til að bregðast við auknum útgjöldum vegna orkukreppunar í kjölfar átakanna í Mið-Austurlöndum. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins kynnti þessar ráðstafanir í dag, þegar árlegt yfirlit um fjármál aðildarríkjanna var kynnt.Samkvæmt reglum Evrópusambandsins má hallinn á ríkissjóðum aðildarríkjanna ekki vera meira en þrjú prósent af þjóðarframleiðslu. Áföll á undanförnum árum, heimsfaraldurinn, allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu vorið 2022 og nú síðast átökin í Mið-Austurlöndum, hafa hins vegar leitt til aukinna útgjalda, ekki aðeins vegna hærra orkuverðs, heldur einnig vegna kröfunnar um auknar fjárfestingar í varnar- og öryggismálum.Allt þetta leiddi til þess að reglurnar um hallarekstur voru teknar úr sambandi,
Evrópusambandið rýmkar reglur um hallarekstur aðildarríkjanna vegna orkukrísunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd