Hjallastefnan stefnir á að opna nýjan leik- og grunnskóla fyrir fjögur hundruð börn við Nauthólsveg í Reykjavík. Kennt verður upp í sjöunda bekk á grunnskólastigi. Skólinn mun taka við af núverandi starfsemi Hjallastefnunnar í Öskjuhlíð. Stefnt er að því að hefja framkvæmdir um mitt ár 2027.