Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fráfarandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segist ekki hafa tekið ákvörðun um framhaldið eftir að hún sagði af sér þingmennsku í dag. Ákvörðunin standi alveg sjálfstætt.Áslaug tilkynnti á þingfundi í dag að hún hygðist segja af sér þingmennsku. Tilkynningin var nokkuð óvænt því Áslaug hefur verið í námsleyfi síðasta árið og aftur sæti á Alþingi í dag.Þrátt fyrir ungan aldur er Áslaug með þeim reynslumestu í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. Hún var fyrst kjörin á þing 2016, þá tæplega 26 ára gömul, og hefur síðan þá gegnt tveimur ráðherraembættum. Hún segir það standa upp úr að hafa fengið að kynnast íslensku samfélagi betur.Áslaug laut í lægra haldi í formannskjöri á landsfundi flokksins í fyrra en segir að það sitji ekki í henni. Allt gerist af ástæðu og Sjá