ESA samþykkir tímabundið regluverk um ríkisaðstoð

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur samþykkt tímabundið regluverk um ríkisaðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir áhrifum af stríðinu í Mið-Austurlöndum.„Regluverkið heimilar markvissa og tímabundna aðstoð til atvinnugreina sem verða fyrir sérstaklega miklum áhrifum af stríðinu, þar á meðal landbúnaðar, sjávarútvegs, samgangna og orkufreks iðnaðar. Markmiðið er að takmarka efnahagslegar afleiðingar og styðja við mikilvæga hluta efnahagslífsins sem verða fyrir barðinu á háum orkukostnaði,“ segir í tilkynningu frá ESA.Reglurnar samsvara reglum sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins samþykkti fyrir aðildarríki þess í lok apríl. Hvað er ESA? ESA er stofnun á vegum EFTA-samtakanna og hefur það hlutverk að fylgjast með framkvæmd samnings um evrópska efnahagsssvæðið (EES) og tryggja fullnustu EFTA
ESA samþykkir tímabundið regluverk um ríkisaðstoð

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd