Berglind Eir Egilsdóttir er nýbyrjuð á strandveiðum á eigin báti. Hún giftir sig öðrum strandveiðimanni á sjómannadaginn og ber barn þeirra undir belti. „Mögulega tek ég fríróður á fimmtudaginn til að snurfusa mig eitthvað til fyrir brúðkaupið,“ segir hún.