Einn drepinn og 63 særðir í árás Írans á flugvöll í Kúveit

Einn var drepinn og 63 eru særðir eftir árás Íranshers á alþjóðaflugvöllinn í Kúveit í morgun. Yfirvöld segja að skemmdir á flugvellinum séu miklar. Sá sem var drepinn var frá Indlandi. Sumir eru alvarlega særðir. Áður en vopnahlé tók gildi milli Bandaríkjanna, Ísraels og Írans gerðu Íranar gagnárásir á nágrannaríkin í hefndarskyni fyrir árásir á sig. Nú virðist stríðið að stigmagnast. Í gær gerði Bandaríkjaher árás á eyjuna Qeshm á Hormússundi og sagði hana viðbragð við tilraunum Írana til árása á nágrannaríkin. Vopnahlé hefur verið í gildi síðan 8. apríl. Viðræður um varanleg endalok stríðsins hafa ekki borið árangur. Á alþjóðaflugvellinum í Kúveit. Mynd úr safni.EPA / NOUFAL IBRAHIM
Einn drepinn og 63 særðir í árás Írans á flugvöll í Kúveit

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd