Lögregla leitar vitna við rannsókn á innbrotinu í Reykjabúið

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar vitna í tengslum við rannsókn á innbroti í Reykjabúið á Suður-Reykjum í Mosfellsbæ á fjórða tímanum aðfaranótt mánudags.Í tilkynningu frá lögreglunni segir að innbrotsþjófurinn hafi verið svartklæddur og komið gangandi að búinu. Lögreglu þykir ekki ósennilegt að hann hafi verið akandi og lagt ökutæki sínu fjarri vettvangi og gengið svo þangað, t.d. úr Skammadal, Helgafellshverfi, Reykjahverfi eða frá Hafravatnsvegi.„Mörg ökutæki eru búin myndavélum og því viðbúið að myndefni frá áðurnefndum tíma sé að finna í fórum einhverra. Einnig er biðlað til forsvarsmanna öryggismyndavéla sem kunna að vera á umræddu svæði að athuga með myndefni vegna málsins,“ segir í tilkynningu lögreglu.Hinir sömu eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar um slíkt á netfan
Lögregla leitar vitna við rannsókn á innbrotinu í Reykjabúið

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd