Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hættir á Alþingi. Þetta tilkynnti hún í ræðu sinni á Alþingi rétt í þessu, en hún sneri aftur á þing í dag eftir leyfi. Hún hefur setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn frá árinu 2016 og er í hópi reynslumestu þingmanna flokksins.Í ræðunni vitnaði hún í 11 ára gamalt viðtal þar sem hún sagði að Alþingi ætti að vera eftirsóknarverður staður til að starfa á í nokkur ár, en að síðan ætti fólk að geta farið annað og að ekki ætti að horfa á stjórnmál sem ævistarf.„Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár,“ sagði Áslaug Arna.Áslaug Arna sagðist hafa gefið sig alla í verkefnin sem þingmaður og ráðherra, en að með því að fara frá Íslandi hefði hún áttað sig á því að reynslan sem hún hefur öðlast á þingi geti líka nýst á