Þjónustutæki rakst utan í væng farþegaflugvélar Icelandair á Tenerife í gær og flaug hún ekki til Íslands í gærkvöld eins og áætlað var.„Það varð óhapp þar sem ökutæki á vellinum rakst utan í vængenda,“ segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Hann segir að varahlutur verði sendur síðar í dag og búist er við að vélin fljúgi heim til Íslands á morgun.Guðni neitar því að atburðurinn geti talist stór. „Þetta er óhapp sem getur gerst í flugi. Farþegar fara með flugi í dag.“Auk flugsins frá Tenerife þurfti að aflýsa flugferð sem vélin átti að fara til München í dag.RÚV / Ragnar Visage