Reykur yfir Pétursborg eftir drónaárás á olíuinnviði

Rússlandsher stöðvaði för 50 árásardróna yfir Leníngrad-héraði í Rússlandi í morgun, greindi héraðsstjórinn frá. Á sama tíma og drónaárásirnar voru gerðar var að hefjast alþjóðleg efnahagsráðstefna í miðborg Pétursborgar. Borgin er í héraðinu. Ráðstefnan hefur verið kölluð „Davos Pútíns“. Reyk lagði yfir borgina vegna elds í olíuinnviðum eftir árásirnar. Tugum flugferða um flugvöll Pétursborgar var frestað eða aflýst í morgun vegna drónanna. Úkraínuher hefur síðustu vikur hert árásir á olíuinnviði í Rússlandi. Zelensky Úkraínuforseti staðfesti í morgun að Úkraínuher hafi gert árásir á olíuinnviði í Pétursborg. AP / Uncredited
Reykur yfir Pétursborg eftir drónaárás á olíuinnviði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd