Innviðaráðherra hefur gert breytingar á reglugerð um ökuskírteini. Veigamesta breytingin lýtur að kröfu um læknisvottorð fyrir eldri ökumenn.Læknisvottorðs verður ekki sjálfkrafa krafist sökum aldurs fyrr en einstaklingur hefur náð 75 ára aldri í stað 65 ára aldurs, samkvæmt breytingum Eyjólfs Ármannssonar innviðaráðherra á reglugerð um ökuskírteini.Breytingin tók gildi þann 29. maí. Í TAKT VIÐ HÆKKANDI LÍFALDUR OG BATNANDI HEILSU Breytingin var unnin í samvinnu við heilbrigðisráðuneytið. Fyrri reglur kváðu á um að fólk þyrfti að endurnýja ökuskírteini á fimm ára fresti eftir að 65 ára aldri er náð.Helstu rök heilbrigðisráðuneytisins fyrir breytingunni eru að heilsa fólks hafi batnað samhliða hækkandi lífaldri. Reynslan hafi sýnt að læknisvottorð séu veitt nær undantekningalaust hjá þei