Alþjóðaflugvöllurinn í Kúveit var rýmdur eftir árás Íranshers. Í frétt Reuters er sagt að drónum og flugskeytum hafi verið beint að flugstöðvarbyggingu.Saud Abdulaziz Al-Atwan, talsmaður varnarmálaráðuneytis Kúveit, segir árásina glæpsamlega stigmögnun af hálfu Írana. Árásin hafi valdið því að fólk særðist auk þess sem byggingin skemmdist talsvert. Í samfélagsmiðlafærslu Al-Atwan greinir hann ekki frá því hve margir særðust en segir þá komna undir læknishendur.Flugmálayfirvöld hafa fellt niður allar ferðir til og frá flugvellinum. Flugvélum sem voru á leið til Kúveit hefur verið beint annað. REGLULEGT SKOTMARK ÍRANSHERS Seint í gærkvöld greindi stjórn Bandaríkjahers frá því að Íransher hefði beint tveimur flugskeytum að Kúveit sem ýmist hefðu ekki náð skotmarki sínu eða hreinlega fallið