Hæg norðaustlæg átt, skúrir og þokuloft

Það er hæglætisveður víðast hvar á landinu þessa dagana, víða með dálítilli vætu. Á morgun bætir aðeins í vind á landinu norðanverðu, en hiti fer í allt að 17 stig á Suðurlandi á morgun. Víkjum að hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands:Í dag er útlit fyrir hæga norðaustlæga eða breytilega átt. Skýjað að mestu á landinu og víða skúrir, en þokuloft lætur líklega á sér kræla með norður- og austurströndinni. Hiti 8 til 15 stig.Á morgun er spáð norðan 3-10 m/s á norðanverðu landinu með dálítilli súldeða rigningu og hita 6 til 11 stig. Hæg breytileg átt sunnantil og einhver göt í skýjahulunni þar, en líkur eru á skúrum síðdegis. Hiti að 16-17 stigum á Suðurlandi þar sem best lætur.Á föstudag er síðan útlit fyrir fremur hæga suðlæga átt með vætu, en þurrt að mestu norðanlands þangað til
Hæg norðaustlæg átt, skúrir og þokuloft

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd