Tekinn á nagladekkjum í júní

Frá og með 15. apríl eiga ökumenn að vera búnir að leggja nagladekkjunum.RÚV / Ragnar VisageNokkuð var um að lögreglan á höfuðborgarsvæðinu kærði ökumenn fyrir umferðarlagabrot í gærkvöldi og í nótt. Ökumenn voru ýmist teknir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna eða áfengis og í það minnsta fjórir ökumenn voru gripnir í akstri án ökuréttinda. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem farið er yfir verkefni hennar frá því klukkan 17 í gær til klukkan 5 í morgun.Einn ökumaður var kærður fyrir að aka á nagladekkjum. Nagladekk eru lögleg frá 1. nóvember til 14. apríl. Það er því rúmlega einn og hálfur mánuður síðan þessi bílstjóri hefði átt að vera búinn að skipta um dekk.
Tekinn á nagladekkjum í júní

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd