Liðsmenn úkraínska hersins.EPA / SERGEY KOZLOV Sjö voru drepnir í drónaárás á rútu sem var á leið frá Moskvu til Simferopol á Krímskaga. Frá þessu greinir Denis Pushilin, leiðtogi aðskilnaðarsinna í Donetsk, í færslu á samskiptamiðlinum Telegram. Hann segir úkraínskan árásardróna hafa ráðist á rútuna. Ellefu farþegar særðust í árásinni, misalvarlega. Pushilin segir þá alla komna undir læknishendur.Rússnesk stjórnvöld segjast hafa skotið niður 50 dróna yfir Leningrad-héraði í nótt. Í héraðinu má finna mikilvæga orkuinnviði og stóra olíuhreinsistöð. Þá hefst efnahagsráðstefna í St. Pétursborg, stærstu borg héraðsins, í dag.