Ríkisstjórn Japans samþykkti í dag að verja rúmlega 2.400 milljörðum króna í aðgerðir til að styðja við heimili landsins. Ákvörðunin var tekin með það fyrir augum að milda höggið af hækkandi verðlagi sem rakið er að mestu til stríðsins í Mið-Austurlöndum. Til stendur að verja fénu í að niðurgreiða eldsneyti og orkureikninga heimila, að því er segir í frétt Reuters. Japanska þingið á þó enn eftir að samþykkja tillöguna. Búist er við því að það geti gerst á föstudag.AFP-fréttaveitan hefur eftir Minoru Kihara, talsmanni ríkisstjórnarinnar, að ríkisstjórnin ætli hafi eyrnamerkt rúmlega þrjár trilljónir japanskra jena til stuðningsaðgerða, það er líkt og áður segir um 2.400 milljarðar króna. Til að setja þá tölu í eitthvað samhengi þá er það nærri helmingur vergrar landsframleiðslu Íslands í fy