Mexíkóskir kennarar veltu styttum um koll – hóta að setja HM í uppnám

Kennarar í Mexíkóborg veltu styttum af fótboltamönnum um koll á einni af aðalgötum borgarinnar í gær. Þeir hóta frekari mótmælum ef stjórnvöld samþykkja ekki launakröfur þeirra. Mexíkó er ein þriggja gestgjafaþjóða heimsmeistaramótsins í fótbolta, sem er haldið í sumar, ásamt Bandaríkjunum og Kanada.Á Paseo de la Reforma í höfuðborginni Mexíkóborg má finna fimm metra háar styttur af fótboltamönnum víða að úr heiminum. Mótmælendur veltu styttum af fótboltamönnum frá Belgíu, Frakklandi og Spáni um koll, rifu af þeim keppnisbúningana og kveiktu í þeim. Mótmælendurnir létu styttu sem sýnir mexíkóskan fótboltakappa aftur á móti í friði.Krefjast tvöföldunar launaMótmælendurnir koma úr röðum óánægðra félagsmanna í mexíkóska kennarasambandinu. Þeir hafna 9% launahækkun sem stjórn kennarasambandsin
Mexíkóskir kennarar veltu styttum um koll – hóta að setja HM í uppnám

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd