Bandaríkjaher kom í veg fyrir röð dróna- og flugskeytaárása Írana í kvöld. Frá þessu greinir stjórn hersins í færslu á samfélagsmiðlinum X.Þar hafnar herinn fullyrðingum íranska byltingarvarðarins um að árás Íranshers á flotastöð Bandaríkjanna í Barein hafi verið árangursrík. Flugskeyti Írana hafi þess í stað öll misst marks.Í tilkynningu Bandaríkjahers segir að tveimur flugskeytum Írana sem skotið var að Kúveit hafi hreinlega fallið í sundur. Herir Bandaríkjanna og Barein hafi aftur á móti skotið niður þrjú flugskeyti sem beint var gegn skotmörkum í Barein.Bandaríkjaher sakar Írana um að hafa beint þremur drónum að almennum borgurum á hafi úti. Herinn skaut drónana niður. NÁ EKKI SAMAN UM VIÐVARANDI FRIÐ Þá segja Bandaríkjamenn að þeir hafi gert „árás í sjálfsvarnarskyni“ á eyjuna Qesh