De la Espriella ávarpar stuðningsfólk sitt eftir fyrri umferð kosninga í Kólumbíu. Hann er á bak við skothelt gler en kosningabaráttan hefur verið blóðug.AP / Fernando VergaraDonald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í kvöld yfir stuðningi við hægrimanninn Abelardo de la Espriella í baráttunni um forsetaembættið í Kólumbíu. Kosið verður á milli hans og vinstrimannsins Ivan Cepeda í seinni umferð forsetakosninga 21. júní.„Úrslit kosninganna eru mjög mikilvæg fyrir framtíð Kólumbíu og samband þess við Bandaríkin. Vegna gífurlegra afreka hans í lífinu og pólitísks stuðnings í minn garð, þá er það mér heiður að lýsa yfir algjörum stuðningi mínum við Abelardo,“ skrifar Trump í færslu á Truth Social.De la Espriella brást við með því að segja að samband ríkjanna yrði sterkara en nokkru sinni fyrr, nái