Litáíska þingið samþykkti í dag ný lög um ríkisútvarpið þar í landi, LRT. Stjórnvöld drógu í land með áform sín eftir hörð mótmæli.Upphafleg áform stjórnvalda mættu harðri mótspyrnu. Þau fólu meðal annars í sér að stofnuð yrði eftirlitsnefnd með LRT, fjölgað yrði um fjóra í útvarpsráði og það fengi meira svigrúm til að segja forstjóra upp en áður. Þá var gert ráð fyrir að LRT fengi einungis opinbert fé til að sinna þjónustu sem aðrir fjölmiðlar og keppinautar á fjölmiðlamarkaði veita ekki.Gagnrýnisraddir höfðu áhyggjur af því að aðgerðirnar kæmu niður á ritstjórnarlegu sjálfstæði ríkisútvarpsins.Fjölmenn mótmæli hafa verið víða um land síðan í desember og tugþúsundir komið saman í miðborg höfuðborgarinnar Vilniusar.Þá hafa yfir 143 þúsund manns skrifað undir bænaskjal gegn því sem þau köll