Fræsing í Hafnarfirði annað kvöld

Stefnt verður að því að fræsa kafla ásamt hringtorgi í Fjarðarhrauni í Hafnarfirði kvöldið 3. júní og aðfaranótt 4. júní.Kaflinn sem um ræðir er 540 metra langur ásamt FH hringtorgi. Fjarðarhrauni verður lokað á milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar á meðan framkvæmdum stendur. Hjáleið verður um Reykjavíkurveg og Fjarðargötu.Viðeigandi merkingar og hjáleiðir verða settar upp.Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 19:00 miðvikudaginn 3. júní og fram til 03:00 á fimmtudagsmorgun.Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.
Fræsing í Hafnarfirði annað kvöld

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd