Páll Valsson rithöfundur og útgefandi segir ró þjóðskáldsins Jónasar Hallgrímssonar ekki vera raskað með því að grafa upp bein hans. Henni hafi þegar verið raskað fyrir 80 árum þegar beinin voru grafin upp í Kaupmannahöfn.Hópur þjóðþekkts fólks sem vinnur að kvikmynd um ævi Jónasar Hallgrímssonar óskaði eftir leyfi til þess að grafa bein hans upp í þjóðargrafreitnum á Þingvöllum, taka úr þeim sýni og senda í erfðagreiningu. Þingvallanefnd segist ekki geta veitt slíka heimild nema fyrir liggi dómsúrskurður. Páll er meðal þeirra sem eru á bak við umsóknina. EFASEMDIR UM HVORT BEININ SÉU AF JÓNASI Páll segir að alveg frá því að beinin voru grafin upp hafi verið efasemdir um að þetta væru hin raunverulegu bein Jónasar.„Ég skoðaði þessi gögn á sínum tíma og það var Matthías Þórðarson þjóðmin