Stöðugleiki helsti kostur evru – vinnumarkaðsmódelið áskorun

Aðalhöfundur skýrslu um kosti Íslands í gjaldmiðlamálum segir að stöðugleiki væri helsti ávinningurinn af upptöku evru. Mikill óstöðugleiki sé í íslensku hagkerfi sem endurspeglist í gengi krónu, verðlagi og vaxtaákvörðunum Seðlabankans. Allt sé það til þess fallið að skapa óvissu.„Fólki líkar ekki við óvissu. Það vill vita hve langt launin duga,“ segir Catherine L. Mann, fyrrverandi aðalhagfræðingur OECD. Hún var til viðtals í Kastljósi í kvöld.Mann lagði mikla áherslu á að það væri ekki verk skýrsluhöfunda að mæla með eða gegn aðild að Evrópusambandinu eða upptöku evru. Slíkt gætu erlendir hagfræðingar ekki gert.„Við erum öll útlendingar. Starf okkar fólst ekki í að leggja fram ráðleggingar, heldur aðeins að koma með hlutlaust mat á kostum og ókostum sem tengjast upptöku evrunnar,“ segir
Stöðugleiki helsti kostur evru – vinnumarkaðsmódelið áskorun

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd