Tónlistarkonan Patti Smith er á landinu og heldur hún tónleika í Hofi á Akureyri í kvöld. Hún hélt tónleika í Eldborgarsal Hörpu á sunnudag.Patti Smith var tekin inn í frægðarhöll rokksins árið 2007 og er stundum kölluð guðmóðir pönksins. Hún elskar að vera á Íslandi og er spennt að spila á Akureyri.„Bílferðin hingað var mjög gefandi. Ferðalagið var eins og ævintýri út af fyrir sig. Við hlökkum mikið til að spila hér og kynnast nýju fólki og deila tónlist með því.“Patti tók börnin sín með sér í þetta skiptið og er líklegt að þau fari á svið með mömmu sinni.„Að spila með þeim báðum er yndislegt, ekki bara af því að þau eru góðir tónlistarmenn heldur magna þau upp pabba sinn heitinn og við finnum sterkt fyrir nærveru hans þegar við spilum saman.“