Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjabúi, telur líklegt að sami einstaklingur og braust inn í búið í fyrrinótt hafi reynt að brjótast inn áður, eftir það atvik hafi öll kerfi verið tekin í gegn.„Þá tókum við allt í gegn og töluðum við starfsfólk og létum vita, fórum yfir alla þætti hérna hjá okkur og þess vegna kannski varð ekki meira tjón en það varð núna.“Yfir 6000 fuglar, bæði kjúklingar og kalkúnar, eru hýstir á Reykjabúinu. Brotist var inn í öll fjögur hús búsins. Spellvirkinn gekk á milli húsa og gerði tilraun til þess að koma fuglunum út. Jón Magnús Jónsson, bústjóri á Reykjabúinu, segir innbrotið hafa verið þaulskipulagt.„Hann gengur beint til verks þar sem hann getur ekki opnað með því að pikka upp lásana svo hann sækir bara kúbein og hleypur hérna í gegnum.“Ekki varð mikið eignat