Unnur Brá verður sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags

Unnur Brá Konráðsdóttir hefur verið ráðin sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.Nýr meirihluti Sjálfstæðisflokks og Borgarbyggðarlistans undirritaði málefnasamning í dag. Sjálfstæðisflokkurinn fékk þrjá fulltrúa kjörna í sveitarstjórn en Borgarbyggðarlistinn tvo fulltrúa. Samanlagt hafa flokkarnir því fimm fulltrúa af níu í sveitarstjórn.Unnur Brá sat á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn 2009–2017 en hún var forseti Alþingis árið 2017. Síðan þá hefur hún m.a. verið aðstoðarmaður ríkisstjórnar 2018–2020 og aðstoðarmaður umhverfisráðherra 2022–2024.Unnur Brá var sveitarstjóri Rangárþings eystra 2006–2009.
Unnur Brá verður sveitarstjóri sameinaðs sveitarfélags

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd