Umhverfis- og samgöngunefnd vill að hagstæðari staðsetning fyrir flugvallarstæði á Ísafirði verði skoðuð. Bæjarstjóri fagnar tillögunni, sveitarstjórnarfólk hafi lengi sammælst um að það verði að tryggja flugið til lengri tíma. > „Það hafa orðið miklar breytingar í framleiðslu á flugvélum og þetta er mjög erfitt flugvallarstæði, eins og allir þekkja sem hafa komið hingað. Þannig við þurfum að halda þessari umræðu á lofti og skoða alla valmöguleika“, segir Gylfi Ólafsson, verðandi bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Í apríl náðust samningar um flug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar til 2030. Í útboði var reiknað með að kostnaðurinn yrði 1,3 milljarðar króna. Eina tilboðið sem barst kom frá Icelandair - og hljóðaði upp á 3,5 milljarða.Flækjustigið er að ákv