Norðurþing er síðasta sveitarfélagið af 20 fjölmennustu sveitarfélögum landsins til þess að mynda og tilkynna um meirihluta. Nú er orðið ljóst, það sem hafði verið í burðarliðnum frá því fljótlega eftir kosningar, að fjórir flokkar mynda aukinn meirihluta í Norðurþingi næsta kjörtímabil. Samtals eru flokkarnir fjórir með 70,9% fylgi.Sjálfstæðisflokkurinn leiddi viðræður fjögurra flokka og kynntu þeir í dag nýjan málefnasamning. Hinir flokkarnir í meirihlutanum eru: Framsókn, Óskalistinn og Samfylkingin. Saman fá flokkarnir sjö fulltrúa af níu í sveitarstjórn. Í minnihlutanum verða Miðflokkur og VG, sem fengu hvor sinn fulltrúann.Ekki er búið að taka ákvörðun varðandi sveitarstjóra og segir í tilkynningu frá nýjum meirihluta að ákvörðun verði kynnt síðar en hann verði faglega ráðinn. Helena