Reiði hefur blossað upp í Bretlandi eftir að myndefni úr búkmyndavél lögreglu sem kom á vettvang hnífaárásar í Southampton í desember var gert opinbert. Árásarmaðurinn var í gær dæmdur í 21 árs fangelsi og myndefnið var hluti af rannsókn málsins og málaferlunum.Sjá má hinn 18 ára Henry Nowak liggja í jörðinni í myndbandinu. Hann sagði lögreglunni nokkrum sinnum að hann hefði verið stunginn og gæti ekki andað. Hann hafði verið úti að skemmta sér með fótboltafélögum sínum þegar hann var stunginn fjórum sinnum. Lögreglumaður heyrist spyrja Nowak hvar hann hafi verið stunginn og segjast efast um að svo hafi verið. Stuttu síðar missti ungi maðurinn meðvitund og lést. SAKAÐI FÓRNARLAMBIÐ UM KYNÞÁTTAHATUR Árásarmaðurinn er 23 ára og stakk Nowak með hnífi með 21 sentimetra löngu blaði. Árásarma