Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að ábyrgð á íslensku hagkerfi verði áfram í höndum Íslendinga hvort sem þjóðin tekur upp evru eða ekki. Val á gjaldmiðli sé aðeins eitt af þeim þjóðhagstækjum sem fyrir eru. Upptaka evru yrði ekki til þess að Seðlabanki Íslands yrði lagður niður.„Líf mitt yrði reyndar auðveldara því ég gæti bara vísað til útlanda þegar verið er að skamma mig,“ sagði Ásgeir í gamansömum tón þegar hann ávarpaði málþing í Hörpu í tilefni af útgáfu nýrrar skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum.„Sama hvort við veljum evru eða krónu þá skiptir máli að við förum eftir þeim leikreglum sem eru. Við höfum prófað nær allar mögulegar leiðir í gjaldmiðlamálum á síðustu hundrað árum, en aldrei farið eftir leikreglum,“ sagði Ásgeir.Ásgeir fór yfir það að upptök