Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir laga­breytingu

Frumvarp dómsmálaráðherra um lög um breytingar á lögum um fullnustu refsinga var samþykkt í gær. Samkvæmt nýju bráðabirgðaákvæði er heimilt að veita fanga lausn til reynslu þegar einn þriðji hluti refsitímans er liðinn, liggi fyrir endanleg ákvörðun á stjórnsýslustigi um að vísa honum úr landi að afplánun lokinni. Einn alræmdasti fangi landsins, Mohamad Th. Jóhannesson, áður Kourani, mun þannig aðeins þurfa að afplána þriðjung átta ára refsingar. Það mun hann hafa gert eftir rúma þrjá mánuði.
Kourani gæti losnað eftir þrjá mánuði eftir laga­breytingu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd