Lögmannafélagið ítrekað óskað eftir gögnum frá lögmanni sem sakaður er um fjárdrátt

Guðrún Björg Birgisdóttir lögmaður hefur verið kærð fyrir fjárdrátt. Í kæru segir að hún hafi í störfum sínum sem skiptastjóri dánarbús konu dregið sér á annan tug milljóna króna. Lögmannafélag Íslands fór undir lok síðasta árs ítrekað fram á að Guðrún Björg skilaði inn fjárvörsluyfirlýsingu. Hún varð þó aldrei við beiðninni.Heimildin greindi fyrst frá málinu.Lögmannsstofa Guðrúnar Bjargar, Logia ehf., var úrskurðuð gjaldþrota 7. janúar á þessu ári. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður höfðar málið fyrir hönd tveggja erfingja konunnar.Samkvæmt kæru, sem Vilhjálmur undirritar, er Guðrún Björg talin hafa dregið sér 12.571.625 krónur úr dánarbúinu. Féð var geymt á fjárvörslureikningi Logia ehf. Brotaþolar fara fram á að Vilhjálmur verði skipaður réttargæslumaður vegna rannsóknar lögreglu á mál
Lögmannafélagið ítrekað óskað eftir gögnum frá lögmanni sem sakaður er um fjárdrátt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd