Pappírsslóðin um Bakkakot: Börn vistuð þar í trássi við lög árið 2005

Börn voru vistuð á fósturheimilinu Bakkakoti í Landeyjum árið 2005 án þess að eigendur Bakkakots hefðu haft leyfi til þess að taka að sér fósturbörn frá sveitarfélaginu. Þegar þetta komst upp bannaði félagsþjónustan í Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslu eiganda Bakkakots, Þóru Bernódussdóttur, að taka að sér fleiri fósturbörn. Í svörum Þóru til sveitarfélagsins kom fram að hún hefði ekki vitað að hún mætti ekki lengur taka á móti fósturbörnum.Börnin sem voru vistuð í Bakkakoti árið 2005 voru send þaðan á vegum barnaverndarnefndar Reykjavíkur. Samkvæmt þessu voru þessi börn, sem voru þrjú talsins, vistuð í Bakkakoti án þess að leyfi væri fyrir því og í trássi við lög. Þessar upplýsingar koma fram í gögnum um starfsemi Bakkakots frá Þjóðskjalasafninu sem Þetta helst fékk frá safninu. Fré
Pappírsslóðin um Bakkakot: Börn vistuð þar í trássi við lög árið 2005

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd