Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, segir samtökin fordæma harðlega það innbrot sem framið var í Reykjabúinu í gærnótt. Hún segir atvikið alvarlegt, sérstaklega í ljósi þess að þetta sé annað innbrot í landbúnaðarfyrirtæki á stuttum tíma.„Hugur okkar er hjá eigendum Reykjabús og starfsfólki fyrirtækisins. Fyrir þá sem verða fyrir slíku er þetta ekki aðeins eignatjón heldur innrás inn á vinnustað þeirra og lífsviðurværi. Það er óásættanlegt að fólk sem starfar við matvælaframleiðslu þurfi að búa við slíkt óöryggi,“ segir Margrét í tilkynningu samtakanna.Þann 12. maí var brotist inn í bú Stjörnugríss á Kjalarnesi og 10 grísir drápust í kjölfarið. Margrét segir að þegar tvö innbrot á skömmum tíma leiði bæði til tjóns, dauða eða aflífunar dýra þurfi að skoða