Sex erlendar konur voru sakfelldar fyrir skjalafals við landamæri Íslands í síðustu viku. Í einu málinu telur lögreglan sig hafa rökstuddan grun um smygl á fólki, þar sem viðkomandi hafi greitt smyglara háar fjárhæðir til að komast til Bretlands en endað á Íslandi.