Kalkúnar tættu í sig yfirlýsingu spellvirkjans

Brotist var inn í Reykjabú í Mosfellsbæ í fyrrinótt. Fuglum var sleppt og skemmdir unnar. Spellvirkinn skildi eftir sig yfirlýsingu sem var þó illskiljanleg eftir að kalkúnarnir á búinu tættu hana í sig.Yfirlýsingin var skilin eftir í stíu kalkúnanna. Að sögn Jóns Magnúsar Jónssonar, bústjóra á Reykjabúinu, voru kalkúnarnir fljótir að tæta blaðið í sig og því erfitt að lesa úr texta bréfsins.Svipað bréf var skilið eftir í búi Stjörnugríss á Kjalarnesi sem brotist var inn í 12. maí. Allt bendir til þess að sami einstaklingur hafi verið þar að verki.
Kalkúnar tættu í sig yfirlýsingu spellvirkjans

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd