Ný ríkisstjórn ætlar að fella niður virðisaukaskatt á ávexti og grænmeti

Ný ríkisstjórn Danmerkur verður formlega kynnt í dag. Jafnaðarmenn, Moderaterne, Sósíalíski þjóðarflokkurinn og Radikale náðu saman í gær um myndun stjórnar á miðjunni og vinstri ás stjórnmálanna.DR, danska ríkisútvarpið, greinir frá nokkrum áherslumálum stjórnarinnar sem lekið hafa út. Stefnumálin verða kynnt nánar í dag. SKATTALÆKKUN TIL AÐ LÆKKA VERÐ MATARKÖRFUNNAR Líkt og víða um heim hefur matvælaverð hækkað í Danmörku. Ríkisstjórnin ætlar að lækka virðisaukaskatt á matvæli um helming og tekur lækkunin gildi 2028. Þá er stefnt að því að afnema virðisaukaskatt á ávexti og grænmeti. Þetta var eitt af stefnumálum Einingarlistans sem ætlar að verja stjórnina vantrausti. Pelle Dragsted, leiðtogi flokksins, tilkynnti um fyrirætlanir um lækkun virðisaukaskatts á matvæli í morgun. DR hefur
Ný ríkisstjórn ætlar að fella niður virðisaukaskatt á ávexti og grænmeti

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd