Jónas Atli Gunnarsson, hagfræðingur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS), segir að það gerist sjaldan að fasteignamat lækki að raunvirði á milli ára. Minni hækkun miðað við síðastliðin ár skýrist af kólnun sem hefur orðið á fasteignamarkaði.„Þá skiptir litlu máli hvaða fasteigna við erum að líta til, hvort sem er íbúðir, atvinnueignir eða sumarhús. Þetta eru hækkanir sem halda varla í við verðbólgu,“ segir hann. FÓLKSFJÖLGUN Á VESTFJÖRÐUM SKÝRI HÆKKUN ÞAR Fasteignamat fyrir 2027 var kunngjört í dag. Það hækkaði um 2,1% milli ára en lækkaði að raunvirði.„Það hafa komið köld og heit ár ef maður getur orðað það svo. Við hækkuðum lítið fyrir tveimur árum síðan en síðan kom rýmingin í Grindavík sem hafði mikil áhrif á fasteignamarkaðinn þannig að aftur hækkaði fasteignamat í