Fyrsti borgarstjórnarfundur nýs meirihluta í Reykjavík hófst klukkan tólf á hádegi.Björg Magnúsdóttir, oddviti Viðreisnar, hefur tekið við sem forseti borgarstjórnar og Einar Þorsteinsson er orðinn formaður borgarráðs.Hildur Björnsdóttir er formlega orðin borgarstjóri en hún og Heiða Björg Hilmisdóttir eiga lyklaskipti klukkan hálf tvö. ÆTLAR AÐ SKÁLA AÐ LOKNUM FUNDI „Við erum að kynna núna fyrstu málin sem koma til afgreiðslu hér á þessum borgarstjórnarfundi,“ sagði nýr borgarstjóri við fréttastofu þegar hún gekk inn á fundinn. Málin segir hún að lúti að samgöngumálum, leikskólamálum og tiltekt í borgarkerfinu.„Og svo málum sem allir flokkar voru sammála um eins og að lengja opnunartíma sundlauga. Svo það er eitt og annað,“ segir Hildur sem bætir við að ný borgarstjórn ætli að skála að